Ferill 487. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 487 . mál.


1100. Nefndarálit


um frv. til l. um breyt. á umferðarlögum, nr. 50 30. mars 1987, með síðari breytingum.

Frá meiri hluta allsherjarnefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ólaf W. Stefánsson og Benedikt Bogason frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, Sigmar Ármannsson frá Sambandi íslenskra tryggingafélaga, Rúnar Guðmundsson frá Vátryggingaeftirlitinu og Helga H. Helgason frá Félagi ungra lækna. Þá bárust nefndinni umsagnir um málið frá Vátryggingaeftirlitinu, Slysavarnafélagi Íslands, Sambandi íslenskra tryggingafélaga, Öryrkjabandalagi Íslands, lögreglustjóranum í Reykjavík, Sýslumannafélagi Íslands, Landssambandi lögreglumanna, borgarstjóranum í Reykjavík og Læknafélagi Íslands.
    Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á nokkrum ákvæðum umferðarlaganna. Í fyrsta lagi er lagt til að niðurstaða mælingar á vínandamagni í lofti sem ökumaður andar frá sér verði að lögum metin sem fullnægjandi sönnun um ölvunarástand á sama hátt og þegar vínandamagn í blóði er mælt. Þá er lagt til að heimilað verði að setja almennar reglur um undanþágu fyrir hreyfihamlaða frá reglum um stöðvun og lagningu ökutækja, en um langt skeið hafa verið í gildi reglur sem lögreglustjórinn í Reykjavík setti um þetta. Einnig eru í frumvarpinu lagðar til breytingar er varða skráningu ökutækja, en þær eru nauðsynlegar vegna skiptingar Bifreiðaskoðunar Íslands í tvö fyrirtæki. Loks eru í frumvarpinu lagðar til hækkanir á vátryggingarfjárhæðum umferðarlaganna.
    Í 2. gr. frumvarpsins, þar sem fjallað er um mælingu vínandamagns, er að finna það nýmæli að hjúkrunarfræðingar og meinatæknar geti annast töku blóðsýna sem hingað til hefur einungis verið í höndum lækna. Leggur meiri hlutinn áherslu á að gert er ráð fyrir því að hjúkrunarfræðingar og meinatæknar annist töku blóðsýna innan þeirra reglna sem um störf þeirra gilda.
    Meiri hluti nefndarinnar mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingu sem gerð er grein fyrir á sérstöku þingskjali. Leggur meiri hlutinn til að 7. og 8. gr. frumvarpsins falli brott, en þar eru lagðar til hækkanir á vátryggingarfjárhæðum. Hjá viðmælendum nefndarinnar kom fram að brýnt væri að endurskoða XIII. kafla umferðarlaganna, um fébætur og vátryggingu, í heild sinni. Því leggur meiri hlutinn til að breytingum á vátryggingarfjárhæðum verði frestað til heildarendurskoðunar, enda hefur ekki komið fyrir að vátryggingarfjárhæðir hafi ekki dugað fyrir bótum. Því beinir nefndin því til dómsmálaráðherra að skipuð verði nefnd til að fjalla um breytingar á kaflanum í heild og skili nefndin tillögum eigi síðar en í haust.

Alþingi, 2. maí 1997.


Sólveig Pétursdóttir,

Valgerður Sverrisdóttir.

Hjálmar Jónsson.

form., frsm.


Jón Kristjánsson.

Árni R. Árnason.

Kristján Pálsson.